This video does not contain audio

Hvernig getum við aðstoðað?

Ertu með spurningu, þarftu aðstoð við bilanagreiningu eða langar þig að skoða fleiri úrræði? Við erum hér til að hjálpa þér. Markmið okkar er að veita framúrskarandi þjónustu og tryggja stuðning á öllum stigum greiðsluferlisins.

Algengar spurningar
Um Verifone
Image
Verifone - Payments Architects
  • Hvað er Verifone?

    Verifone er leiðandi fyrirtæki í greiðslulausnum, bæði á Íslandi og um allan heim. Við bjóðum upp á fjölbreytt úrval af posum, hugbúnaði og þjónustu fyrir fyrirtæki af öllum stærðum.

  • Hvaða tegundir af greiðslulausnum býður Verifone upp á?

    Við bjóðum upp á fjölbreyttar lausnir, þar á meðal posa fyrir verslanir, veitingastaði og aðra þjónustuaðila, greiðslulausnir fyrir netverslanir, snertilausar greiðslur, greiðslulausnir fyrir sjálfsala og margt fleira.

  • Hvernig get ég pantað greiðslulausnir og posa hjá Verifone?

    Þú getur pantað Verifone posa og aðrar greiðslulausnir með því að hafa samband við söludeild okkar í síma 544-5060 eða með því að senda okkur skilaboð.

  • Hvar get ég fengið þjónustu fyrir Verifone tækið mitt?

    Ef þú þarft þjónustu fyrir Verifone tækið þitt getur þú haft samband við þjónustuver okkar í síma 544-5060 eða sent okkur skilaboð. Við bendum einnig á þjónustusíðuna okkar.

  • Hvernig get ég lært meira um Verifone og lausnirnar sem í boði eru?

    Vefsíðan okkar verifone.is, inniheldur ítarlegar upplýsingar um fyrirtækið okkar, þjónustuframboð og lausnir. Þú getur einnig haft samband við okkur beint ef þú hefur einhverjar spurningar.

  • Eigið þið lausn sem sameinar sölustaði mína á einn stað?

    Já, við bjóðum upp á lausnir sem hjálpa kaupmönnum, óháð starfsgrein, að skapa alhliða viðskiptaupplifun á hverjum degi.

    Táknræn auðkenning er grunnurinn að öllum alhliða viðskiptakerfum og gerir kaupmönnum kleift að bera kennsl á viðskiptavini sína óháð því hvar þeir velja að versla við fyrirtækið þitt.

    Verifone Central, öflugur skýrsluvefur okkar, einfaldar greiningu gagna með því að safna saman öllum greiðslugögnum þínum í eitt kerfi. Þessar upplýsingar eru síðan settar fram í ítarlegum skýrslum.

Um greiðslulausnir
Image
Business partners analyzing payment data on tablet
  • Get ég tekið við Apple Pay og Google Pay með Verifone posum og greiðslulausnum?

    Já, flestar Verifone greiðslulausnir styðja Apple Pay og Google Pay, sem gerir viðskiptavinum þínum kleift að greiða á fljótlegan og þægilegan hátt.

  • Hvað kostar að nota Verifone greiðslulausnir?

    Verðlagning fer eftir þörfum þínum og tegund viðskipta. Kíktu á verðskrána okkar eða hafðu samband við söludeildina okkar til að fá nánari upplýsingar og tilboð.

  • Er hægt að tengja Verifone posa við afgreiðslu- og bókhaldskerfið mitt?

    Já, Verifone posarnir eru samhæfir flestum helstu afgreiðslu- og bókhaldskerfum t.a.m. DK Hugbúnaður, Regla, LS Retail, SalesCloud og fleiri. Þetta gerir þér kleift að halda utan um allar færslur á einum stað.

  • Hvaða öryggisstaðla uppfylla Verifone greiðslulausnir?

    Verifone leggur mikla áherslu á öryggi og uppfyllir ströngustu öryggisstaðla, þar á meðal PCI DSS.

Fyrir þróunaraðila
Image
Suporte
  • Hvar finn ég API skjölun fyrir Verifone?

    API skjölun fyrir Verifone er að finna á þróunarvef okkar verifone.cloud.

  • Hvernig fæ ég aðgang að Verifone sandkassaumhverfi?

    Sandkassaumhverfi gerir þér kleift að prófa samþættingar við Verifone API-in án þess að hafa áhrif á raunveruleg gögn. Þú getur sótt um aðgang að sandkassaumhverfi á þróunarvefnum okkar.

  • Hvernig tryggir Verifone öryggi gagna í gegnum API-in?

    Verifone leggur mikla áherslu á öryggi gagna og notar ýmsar öryggisráðstafanir til að vernda gögn sem send eru í gegnum API-in. Þar á meðal eru dulkóðun, auðkenning og heimildarstýring.

Um Verifone á Íslandi
Image
verifone logo and reflection in a window
  • Hvar er skrifstofa Verifone á Íslandi?

    Skrifstofan okkar er staðsett að Hlíðasmára 12, 201 Kópavogi.

  • Hver er opnunartími skrifstofunnar?

    Skrifstofan er opin frá 9:00 til 17:00 alla virka daga.

  • Get ég sótt Verifone posa á skrifstofuna?

    Já, þú getur sótt Verifone posa á skrifstofuna okkar á opnunartíma.

  • Hvaða þjónustu býður skrifstofan upp á?

    Starfsfólk okkar á Íslandi býður upp á fjölbreytta þjónustu, þar á meðal ráðgjöf um greiðslulausnir, leigu á posum, tæknilega aðstoð og þjónustu á leigutímabilinu.